
Mónína varð til úr löngun til að bjóða upp á vörur sem skipta raunverulegu máli. Í dag leggjum við sérstaka áherslu á frjósemi og bjóðum upp á vandaðar, áreiðanlegar og öruggar vörur fyrir einstaklinga og pör sem eru á sinni frjósemisvegferð.
Frjósemi er viðkvæmt og persónulegt málefni. Við nálgumst það af virðingu, hlýju og fagmennsku. Vöruúrvalið okkar samanstendur af vel völdum frjósemistengdum vörum, þar á meðal þungunarprófum, egglosprófum, fæðubótarefnum og öðrum vörum sem styðja við frjósemi og hormónajafnvægi. Við leggjum mikla áherslu á gæði og öryggi og tryggjum að allar vörur uppfylli evrópska staðla.
Markmið okkar er að veita trausta þjónustu og skapa öruggt rými þar sem viðskiptavinir finna fyrir skilningi og trúnaði. Við bjóðum hraða og örugga heimsendingu og einnig er hægt að nálgast vörur beint af lager. Hjá Mónínu sameinum við persónulega nálgun og faglega ábyrgð – því við vitum að á bak við hverja pöntun er saga, von og framtíð.
Eigendur Mónína.is
María Lena Ófeigsdóttir
kt. 220792- 2699
Osaretin Amadin
kt .121282-3569
